Á árin 2019 hófst vinna við að tengja Google þjónusturnar Gmail og Gdrive við Jibby umhverfið. Tenging við Gmail hefur verið til staðar en ósamþykkt út frá öryggisstöðlum Google. Á árinu 2020 verða báðar þessar tengingar tilbúnar samkvæmt öllum öryggiskröfum sem Google gerir um slíkar tengingar.
Tenging við Gdrive opnar marga möguleika fyrir Jibby notendur. Sérstaklega má nefna að margir munu finna fyrir létti að vera með afritun inn í mjög þekkt umhverfi. Aðrir munu geta deilt upplýsingum á Jibby gegnum Gdrive til aðila sem ekki eru tengdir Jibby kerfinu.
Að hlaða tölvugögnum inn á önnur kerfi eins og mannvirkjagáttina verður leikur einn með tengingu við Gdrive.
