JibbyByggir sem sett er upp hinu íslenska Jibby.com vefumhverfi hefur náð að festa sig í sessi sem valkostur fyrir fagaðila í mannvirkjagerð. Frá því Uppstreymi ehf kynnti JibbyByggir til sögunnar í upphafi árs 2015 hafa átt sér stað miklar breytingar á kerfinu til að auka hraða, öryggi og aðgengi notenda. Á síðasta ári náði JibbyByggir því markmiði að yfir 100 skráðir notendur á íslenskum byggingamarkaði eru í kerfinu með mismunandi fjölda notenda hver. Þjónustan hefur þróast og fljótlega á árinu 2020 verða komnar öflugar leiðbeiningar á netinu til að læra á kerfið án þess að fá kennara á staðinn eða sækja námskeið. Jafnframt bjóðum við upp á að vinna gögn inn í gæðakerfið reglulega og hjálpa þannig notendum að tileinka sér smám saman vinnubrögð sem fylgja notkun og rekstri gæðakerfa.
